← Heim

Af hverju við prentum ekki nafn barnsins á merkimiðann

Í ágúst sest þú niður með tússpenna og merkir allt: útigallann, vettlingana, sundpokann og nestisboxið. Nafn barnsins fer á hvern einasta hlut, því annars kemur lítið heim.

Á leikskólatöskunni stendur oft nafn barnsins og símanúmer foreldris. Taskan hangir á snaga í anddyri þar sem tugir manna ganga um á hverjum degi, fer með í strætó, í sund og í búðina. Hver sem er getur lesið nafnið og ávarpað barnið með því.

Ráðlegging Persónuverndar hefur lengi verið sú sama: hafið ekki nafn barnsins sýnilegt utan á töskum eða fatnaði. Á hefðbundnum merkimiðum hefur þurft að velja á milli: annaðhvort er nafnið sýnilegt öllum, eða hluturinn týnist og enginn veit hver á hann.

Kóði í stað nafns

Í stað þess að prenta nafn barnsins prentar Retra stuttan kóða. Fyrir þann sem gengur framhjá snaganum í anddyrinu þýðir kóðinn ekkert.

Sá sem finnur týndan hlut skannar kóðann með myndavél í síma og sendir skilaboð sem berast þér beint í tölvupósti. Finnandinn sér hvorki nafn barnsins, netfangið þitt né símanúmer. Við spyrjum heldur aldrei um nafn barnsins við skráningu, svo þær upplýsingar eru ekki til í kerfinu.

Ef foreldrar vilja samt láta prenta nafn á miðann er það sjálfsagt mál, en sjálfgefið er að nota aðeins kóða.

Enginn rakningarbúnaður

Retra er ekki GPS- eða rakningarbúnaður. Ef enginn finnur útigallann veit kerfið ekki hvar hann er. Tilgangurinn er einfaldlega að gera þeim sem finnur hlutinn kleift að ná í eigandann, án þess að persónuupplýsingar barnsins hangi sýnilegar í anddyrinu.